Þakgerð 2.B
Timbur – IKO base P4000 T/F – Festingar – IKO roofgarden 4 SBS T/F – Nophadrain ND 4+1 h – Torf/Gróður
Uppbygging:
Timbur
Undirlag – IKO base P4000 T/F
Festingar – Guardian Combi 35/45
Yfirlag – IKO roofgarden 4 SBS T/F
Yfirlag Kantar – IKO roofgarden 4 SBS AD/F
Drendúkur – Nophadrain ND 4+1 h
Farg – Torf
Timburþak með torfi (grænt þak)
Liður 1. Pappalögn
Tekið er við þakplötu hreinni og tilbúinni til pappalagnar.
Á þakið koma tvö lög af þakpappa. Bæði undir- og yfirlag eru SBS þakefni sem er skammstöfun
fyrir styren butten styren gúmmí sem er blandað í asfaltið til mýkingar
Undirlag:
Undirlagið, IKO base P4000 T/F er lagt laust ofan á þakið og eldsoðið saman á samskeytum. Það er fest niður með rósettum á jöðrum. Pappinn skarast 8-10cm á langhliðum og skammhliðum og er lagt í stefnu vatnshallans. Efnisþyngd er 4,0 kg/m2. Styrktarmottan í pappanum er polyester 180 gr/m2.
Festingar:
Magn festinga á þak er ekki alltaf það sama og fer magn eftir vindálagi á hvert þak fyrir sig.
Yfirlag:
Yfirlagið, IKO powerflex 4 AD/F ICE, er eldsoðið á undirlagið og lagt í sömu stefnu. Yfirlagið er lagt þannig að samskeyti á undirlagi komi ca á miðja rúllu yfirlags. Pappinn skarast eins og undirlagið. Efnisþyngd er 5,2 kg/m2. Styrktarmottan í pappanum er polyester 180 gr/m2.
Kantar:
Á fleti sem standa upp úr fargi og eru undir álagi sólar skal setja asfaltdúk með steinmulningi.
IKO powerflex 4 AD/F ICE.
Litur á steinmulningi: Dökk grár
Þyngd 10,1 kg/m2
Liður 2. Drendúkur (Nophadrain 4+1 h)
Ofan á yfirlag er lagður Nophadrain drendúkur. Dúkurinn er lagður laus ofan á yfirlag í 1,25m breiðum renningum óháð vatnshalla og er lagður upp að köntum.
Nophadrain 4+1 h er hágæða, CE-vottaður drendúkur með vatnsbirgðageymslum fyrir gróður sem liggur honum að ofan. Dúkurinn kemur í veg fyrir að vatnsþrýstingur myndist ofan við yfirlagið, ver það fyrir álagi og sér til þess að vatn komst auðveldlega að niðurföllum.
Liður 3. Farg - Torf
Torf er lagt á þakið í 2-4 lögum og fer það eftir vindálagi á þakið hversu þungt torfið þarf að vera

Liður 4. Niðurföll
Frágangur niðurfalla:
- Niðurföllin eru eldsoðin á undirlagið er pappalögn við undirlag er lokið. Ganga verður vel frá þéttingu þeirra áður en yfirlagsdúkur kemur yfir.
- Að lokum er yfirlagsdúkur eldsoðinn á undirlagið og yfir niðurföll.
- Þar sem niðurfall er við þakplötu verður að framlengja niðurföll upp fyrir torf með götuðum 2mm álrörum með álrist.