Steinþak

You are here:

Steinþak

Þakkerfi ofan á steypta plötu er öflugt kerfi fyrir hallalítil þök sem eru einangruð að innan. Kerfið byggist upp af undirlagi sem er fest á þakið með festingum og eldsoðningu á samskeytum, og yfirlagi sem er eldsoðið ofan á undirlagið. Klassísk dæmi um notkun þessa kerfis eru til dæmis steypt bílskúrsþök og steypt þök eldri bygginga.

Þaktak ehf notar eingöngu hágæða þakefni frá viðurkenndum framleiðendum í Evrópu. Asfaltdúkar koma frá IKO B.V. í Belgíu og festingar koma frá Guardian B.V. í Hollandi.

Uppbygging:

  1. Steypt plata
  2. Undirlag – IKO powerflex 5000 T/F
  3. Festingar – Guardian CS+SP
  4. Yfirlag – IKO powerflex 4 AD/F ICE eða IKO pantera

Þakkerfi ofan á steypta plötu

Liður 1. Steinsteypa og grunnur
Tekið er við þakplötu hreinni og tilbúinni til grunnunar. Þakflötur er grunnaður með IKO fast dry primer sem er fljótþornandi grunnur sem þornar á u.þ.b. 20-40 mínútum. Grunnurinn eykur samloðun þakdúks og plötu.

Liður 2. Undirlag
Undirlagið, IKO powerflex 5000 T/F, er lauslagt á þakflöt með léttri eldsuðu. Þakdúkurinn er látinn skarast 8-10 cm á bæði langhliðum og skammhliðum og lagður í stefnu vatnshallans. IKO powerflex 5000 T/F er SBS bættur asfaltdúkur með 180 gr/m2 polyester styrktarmottu.

Liður 3. Festingar

Undirlagið er fest niður með sér til gerðum festingum fyrir steinþök. Festingarnar, Guardian CS+SP, eru lagðar á mitt undirlagið og við skaranir á langhliðum. Magn festinga fer eftir vindálagi sem getur verið mismunandi eftir verkum og bjóðum við því upp á festingaplön fyrir okkar viðskiptavini.

Liður 4. Yfirlag og kantar

Yfirlagið, IKO powerflex 4 AD/F ICE, er eldsoðið á undirlagið og lagt í sömu stefnu. Yfirlagið er lagt þannig að samskeyti á undirlagi koma sirka á miðja rúllu yfirlagsins. Þakdúkurinn er látinn skarast 8-10 cm á bæði langhliðum og skammhliðum og lagður í stefnu vatnshallans. IKO powerflex 4 AD/F ICE er dökkgrár SBS bættur asfaltdúkur með 180 gr/m2 polyester styrktarmottu. Einnig er hægt að nota IKO Pantera sem er svartur SBS bættur yfirlagsdúkur með 250 gr/m2 polyester styrktarmottu.

Liður 5. Niðurföll og annað

Niðurföll eru eldsoðin á undirlagið er pappalögn við undirlag er lokið. Ganga verður vel frá þéttingu þeirra áður en yfirlagsdúkur kemur yfir. Yfirlagsdúkur er síðan eldsoðinn á undirlagið og yfir niðurföll.

Lofttúður eru eldsoðnar á yfirlagið er pappalögn yfirlags er lokið. Ganga verður vel frá þéttingu þeirra fyrir lokafrágang. Að lokum er yfirlagsdúkur eldsoðinn yfir fláns lofttúðu.