Viðsnúið þakkerfi

You are here:

Viðsnúið þakkerfi

Viðsnúið þakkerfi eru þakkerfi þar sem einangrun liggur ofan á vatnsþéttilaginu. Þetta gerir það að verkum að vatnsþéttilagið er mjög vel varið fyrir sólargeislum, hitabreytingum og öðru ytra álagi. Asfaltdúkurinn er heillímdur á steinsteypta flötinn sem gerir það að verkum að auðvelt er að staðsetja leka ef svo ber að.

Þaktak ehf notar eingöngu hágæða þakefni frá viðurkenndum framleiðendum í Evrópu. Grunnur og asfaltdúkar koma frá IKO B.V. í Belgíu, ND IR dredúkur undir einangrun kemur frá Nophadrain N.V. í Hollandi, og Ravatherm einangrunin kemur frá Ravago Building Solutions í Bretlandi.

Uppbygging:

  1. Steypt plata
  2. Grunnur – IKO fast dry primer
  3. Undirlag – IKO powerflex 5000 T/F
  4. Yfirlag – IKO powerflex 4 T/F ICE
  5. Yfirlagskantar – IKO powerflex 4 AD/F ICE
  6. Drendúkur – Nophadrain ND IR
  7. Einangrun – Ravatherm XPS X 300 SL
  8. Vatnsfleytidúkur – Ravatherm XPS X MK
  9. Farg – Malarfarg

Viðsnúið þakkerfi frá Þaktak (Inverted roof system)

Liður 1. Steinsteypa
Tekið er við þakplötu hreinni og tilbúinni til grunnunar.

Liður 2. Grunnur
Þakflötur er grunnaður með IKO fast dry primer sem er fljótþornandi grunnur sem þornar á u.þ.b. 20-40 mínútum. Grunnurinn eykur samloðun þakdúks og plötu.

Liður 3. Undirlag
Undirlagið, IKO powerflex 5000 T/F, er heillímt á þakflöt með eldsuðu. Þakdúkurinn er látinn skarast 8-10 cm á bæði langhliðum og skammhliðum og lagður í stefnu vatnshallans. IKO powerflex 5000 T/F er SBS bættur asfaltdúkur með 180 gr/m2 polyester styrktarmottu.

Liður 4. Yfirlag
Yfirlagið, IKO powerflex 4 T/F ICE, er heillímt á undirlagið með eldsuðu. Þakdúkurinn er lagður í sömu stefnu og undirlagið og lagður svo að skörun lendi á sirka miðju undirlagsins. IKO powerflex 4 T/F ICE er SBS bættur asfaltdúkur með 180 gr/m2 polyester styrktarmottu.

Liður 5. Yfirlagskantar
Á alla þá fleti sem standa upp úr fargi og verða fyrir álagi sólar skal nota asfaltdúk með steinmulningi. IKO powerflex AD/F ICE er SBS bættur asfaltdúkur með 180 gr/m2 polyester styrktarmottu sem þolir sólarljós.

Liður 6. Drendúkur undir einangrun
Drendúkur á milli þakdúks og einangrunar kemur í veg fyrir uppsöfnun vatns á milli laganna. Vatn sem liggur lengi á milli þessara laga hefur neikvæð áhrif á einangrunareiginlega XPS einangrunarinnar. Nophadrain ND IR er sérhannaður drendúkur undir einangrun. Dúkurinn er samansettur úr þremur hlutum, (1) óofinn geotextíll, (2) bolladúk, og (3) aðskilnaðarlagi sem skilur að þakdúkinn og plastefni bolladúksins.

Liður 7. XPS Einangrun
Ofan á ND IR drendúkinn er lögð Ravatherm XPS X 300 SL plasteinangrun. Plöturnar get verið lagðar í einu 200 mm lagi eða 2×100 mm lagi. Einangrunin frá Ravatherm er hágæða einangrun frá Bretlandi og er í dag stærsti framleiðandi XPS einangrunar í Evrópu. Ravatherm XPS X 300 SL er með varmaleiðni (λD) 0,031 W/m.K, en einnig er hægt að fá Ravatherm XPS X ULTRA 300 SL sem er með varmaleiðni (λD) 0,027 W/m.K. ULTRA einangrunin býður upp á þynnri heildar uppbyggingu kerfisins sem getur hentað vel við aðstæður þar sem kanthæð er lítil.

Liður 8. Vatnsfleytidúkur
Ravatherm XPS X MK Mink dúkur er lagður ofan á einangrun með það að markmiði að lágmarka magn vatns sem nær til vatnsþéttilagsins. Dúkurinn er látinn ganga upp á kanta, upp úr farginu og lagður svo að skaranir séu í samræmi við vatnshalla þaksins. Ravatherm XPS X MK dúkurinn er vatnsheldur en hleypir á sama tíma raka úr kerfinu. Þannig varnar dúkurinn því að einagrunin dragi í sig raka sem hefur neikvæð áhrif á einangrunargildi þaksins. Nánari útskýring á virkni Mink dúksins er neðar á síðunni.

Liður 9. Farg
Ofan á dúk skal setja farg. Farg getur ýmist verið möl, hellur, gras, eða einhverskonar blöndur af þessum efnum.

Liður 10. Niðurföll og annað
Niðurföll eru eldsoðin á undirlagið er pappalögn við undirlag er lokið. Ganga verður vel frá
þéttingu þeirra áður en yfirlagsdúkur kemur yfir. Yfirlagsdúkur er síðan eldsoðinn á undirlagið og yfir niðurföll. Þar sem niðurfall er við þakplötu verður að framlengja niðurfallið upp fyrir farg með götuðum 2 mm álristum.
Lofttúður eru eldsoðnar á yfirlagið er pappalögn yfirlags er lokið. Ganga verður vel frá þéttingu þeirra fyrir lokafrágang. Að lokum er yfirlagsdúkur eldsoðinn yfir fláns lofttúðu.

Nophadrain ND IR drendúkur undir einangrun

Drendúkur á milli þakpappa og einangrunar kemur í veg fyrir það að vatn safnist upp á milli þakpappa og einangrunar og hafi áhrif á einangrunareiginleika XPS einangrunarinnar. Nophadrain ND IR er sérhannaður drendúkur sem kemur í veg fyrir að þetta gerist. Dúkurinn er samsettur úr þremur hlutum, óofnum geotextíl, drenlagi og aðskilnaðarlagi sem skilur að þakpappa og plastefni drenlagsins.

Ravatherm XPS einangrun

Það sem einkennir Ravatherm einangrunina er lægri varmaleiðni (0,031) en almenn XPS einangrun (0,035-0,038), en einnig er til Ravatherm ULTRA einangrun sem er með lambda gildi 0,027. Einangrunina er hægt að leggja bæði í einu 200mm lagi eða tveimur 100mm lögum. Vanda þarf sérstaklega frágang við niðurföll, kanta og aðra hluta sem standa upp úr þakinu og geta valdið kuldabrúm.

Ravatherm XPS X 300 SL er með BRE Green Guide A+ vottun ásamt því að vera BBA og CE vottuð. Einangrunin er á lista yfir efni sem nota má á svansvottaðar byggingar.

Ravatherm XPS X MK Mink Dúkur

Ofan á einangrun er lagður Ravatherm XPS X MK Mink dúkur. Dúkurinn skal ganga upp á kanta og upp úr fargi. Mikilvægt er að dúkurinn sé lagður þvert á stefnu vatnshallans og skaraður eins og línur sýna á dúk. Dúkurinn skal ganga upp fyrir farg við kanta á þaki eða yfir endanlegt jarðvegsyfirborð. Dúkurinn er skorinn við niðurföll og gengur hann niður í úrtak fyrir álrist við niðurfall. Álristin er síðan set ofan í úrtak og heldur við dúkinn.

Áhrif kælingu regnvatns vegna úrkomu sem flýtur á milli þéttilags og einangrunnar krefst aukninnar þykktar einangrunnar til að mæta kröfum reglugerðar. Komið er til móts við hitatap með notkun Mink kerfis frá Ravatherm sem lágmarkar hitatap vegna regnvatns kælingu. Ravatherm XPS X MK er vatnsheldur en á sama tíma hleypir hann út vatnsgufum. Regnvatni er því meinað að ná til þéttilagsins og dregur því úr kælandi áhrifum.

Ravatherm XPS X MK Mink á að vera laust lagt yfir einangrunina, hornrétt á halla, með 300 mm skörun sem gengur niður hallann.Þetta mun hjálpa fargi við að vinna gengn floti einangruninnar. Á kanta og fleti sem standa upp skal dúkurinn ná upp fyrir farg þaks.

Ravatherm XPS X MK Mink er ofinn polyetylen jarðefnadúkur með eftirfarandi eiginleikum:

  • Vatnsgufudrægur
  • Vatnsheldur
  • UV stöðugur, getur verið óvarinn í allt að 4 mánuði
  • Bráðnar og skreppur samann við eld
  • Heldur sveiganleika og styrk í -73°C
  • Bræðslumark hans er 135°C