Nophadrain ND200sv
Á lager
Nophadrain ND200sv er drendúkur undir hellulögn ofan á XPS einangrun. Hentar mjög vel sem drenlag undir hellur á þakgörðum þar sem hann þolir bæði gangandi og hjólandi umferð. Dúkurinn samanstendur af þremur dúkum: (1) jarðvegsdúk, (2) götuðum bolladúk og (3) jarðvegsdúk.
Annað:
Þrýstistyrkur: 700 kPa
Hæð takka: 12 mm
Drendúkarnir frá Nophadrain eru framleiddir úr endurunnu HIPS efni (High Impact Polystyrene) sem er með þá sérstöðu gagnvart HDPE efni (High Density Plyethilene) að það heldur upprunalegu formi sínu mun betur sem tryggir háa langtíma afrennslisgetu.
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða þarft meiri upplýsingar um þessa vöru, heyrðu þá í okkur í gegnum netfangið sala@taktak.is eða í síma 581-1112