Vökvaþéttingar

You are here:

Vökvaþéttingar

Grunnar og Vökvaþéttingar

Í dag notum við hin ýmsu vökva þéttiefni frá IKO í Belgíu. Þessi efni eru fyrir þök þar sem óskað er eftir þéttiefnum í vökvaformi.

Efnin eru notuð t.d á svalargólf til þéttingar og er þá lokafrágangur með sandi eða flögum sem stráð er yfir efnið blautt. Einnig er hægt að fá lokafrágang sem er í líkingu við steinteppi.

Við eigum líka þéttiefni sem eiga við þakpappa (MS detail) sem notuð eru í kringum erfið deili.
Einnig eigum við efni sem hægt er að nota sem þéttilag á stein og járn þar sem ekki er óskað eftir dúkum eða skyldum efnum.

5b4055_9b848e36005547dfa91b33b0f16bc9bb_mv2_d_4000_2248_s_2
sqr031-col1-new
sqr031-col1-new

MS Detail

MS Detail er einnar þáttar plastefni byggt upp af MS (modified silicon) fjölliðum. Þornunartími efnisins fer eftir loftraka og umhverfishita. Við 50 % hlutfallsraka og 20 ◦C tekur það, 2 mm þykkt lag af MS Detail, 60-120 mínútur að verða regnhelt, en efnið nær fullum styrk á 24 klukkustundum.

Teknoprimer detail

Teknoprimer Detail er grunnur fyrir MS Detail. Beita skal Teknoprimer detail með því að nota málningarpensil með stuttum hárum, u.þ.b. 0,1-0,2 l/m2.

Teknotan BT

Teknotan BT er einnar þáttar plastefni byggt upp af pólýúretan. Þornunartími efnisins fer eftir loftraka og umhverfishita. Við 50 % hlutfallsraka og 20 ◦C tekur það, 2 mm þykkt lag af Teknotan BT, 60-120 mínútur að verða regnhelt, en efnið nær fullum styrk á 24 klukkustundum.

Teknoprimer

Teknoprimer er grunnur fyrir Teknotan BT. Beita skal teknoprimer með því að nota málningarpensil með stuttum hárum, u.þ.b. 0,1-0,2 l/m2.

IKO fast dry primer

IKO primer er fljótþornandi grunnur sem þornar á 20-40 mín við 20°C.