28/05/2026

Ravatherm XPS einangrun fyrst til að fá CCPI vottun

Skýrar, réttar og aðgengilegar vöruupplýsingar sem hægt er að treysta á
Ravago Þaktak

Ravago Building Solutions er nú fyrsti framleiðandi XPS einangrunar sem hefur fengið CCPI vottun (Code for Construction Product Information). Þetta á við allar vörur í Ravatherm XPS X vörulínunni. Með þessari vottun geta viðskiptavinir treyst því að allar tæknilegar upplýsingar séu réttar, skýrar, aðgengilegar og studdar áreiðanlegum gögnum. 

Ravatherm XPS X er nú eina XPS einangrunin á markaðnum með vottun frá CCPI og með henni geta verktakar og hönnuðir verið enn vissari um gæði Ravatherm XPS X vörulínunnar.

Ravatherm XPS X 300 SL er hágæða XPS einangrun með mjög lága varmaleiðni (λd = 0,030 W/mK), sem þýðir að hægt að ná sama U-gildi með þynnra einangrunarlagi. Hún er með skilgreint langtímaskriðþol sem gefur raunhæfa mynd af því hvernig einangrunin hegðar sér undir álagi út líftíma byggingarinnar, ekki aðeins við styttri álagsprófanir. Þannig er hægt að byggja bæði hönnun og útreikninga á raunverulegri langtímahegðun.

Deila þessari færslu:
Facebook
Twitter
LinkedIn
WhatsApp

Fleiri fréttir og greinar